Vilja leggja niður aðflutningsgjöld af jarðstrengjum
„Um árabil hafa íbúar á leið Blöndulínu 3 barist gegn þrýstingi Landsnets um lagningu háspennulínu og krafist þess að metin verði á hlutlausan hátt lagning jarðstrengja á þeirri leið sem Íslandi öllu. Jafnframt er þess krafist að stjórnvöld leggi niður aðflutningsgjöld af jarðstrengjum til samræmis við loftlínur.“ Þetta segir í ályktun landeigenda í Skagafirði varðandi Blöndulínu 3 og kröfu landeigenda um lagningu jarðstrengs.
Í ályktuninni kemur fram að landeigendurnir fagni því að jarðstrengir séu nú metnir sem valkostur við raflínulagnir um Sprengisand og er lýst yfir stuðningi við verndun hálendisins og mótmælt loftlínu um Sprengisand.
Jafnframt eru sendar baráttukveðjur til landeigenda á Suðurnesjum og Eyfirðingum og eyfirskum sveitarstjórnarmönnum þakkað fyrir frumkvæði og framsýna stefnu um lagningu jarðstrengja, „landsmönnum og náttúru Íslands til hagsbóta“. Um leið er skorað á sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar að fylgja þeirra frumkvæði.
Eftirfarandi er ályktun landeigandana í heild sinni, sem samþykkt var að Mælifellsá þann 19. apríl 2014:
„Fundarmenn óska landsmönnum öllum til hamingju með að jarðstrengir eru nú metnir sem valkostur við raflínulagnir um Sprengisand. Lýst er yfir stuðningi við verndun hálendisins og loftlínu um Sprengisand mótmælt.
Um árabil hafa íbúar á leið Blöndulínu 3 barist gegn þrýstingi Landsnets um lagningu háspennulínu og krafist þess að metin verði á hlutlausan hátt lagning jarðstrengja á þeirri leið sem Íslandi öllu.
Jafnframt er þess krafist að stjórnvöld leggi niður aðflutningsgjöld af jarðstrengjum til samræmis við loftlínur.
Fundurinn sendir baráttukveðjur til landeigenda á Suðurnesjum sem nú er hótað eignarnámi í þágu stóriðju.
Eyfirðingum og eyfirskum sveitarstjórnarmönnum er þakkað frumkvæði og framsýn stefna um lagningu jarðstrengja, landsmönnum og náttúru Íslands til hagsbóta og er skorað á sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar að fylgja þeirra frumkvæði.“
Landeigendurnir vildu vekja athygli á eftirfarandi hlekkjum:
Landeigendur og áhugafólk um jarðstrengi.
https://www.facebook.com/jardstrengir
tengt efni:
http://umhverfisfrettir.is/2014/03/16/nidurstodur-nefndar-um-lagningu-raflina-i-jord/
http://landvernd.is/Sidur/ID/4937/Jarstrengir-raunhfur-valkostur-til-flutnings-raforku
http://www.althingi.is/altext/143/s/0941.html
http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=143&mnr=60
http://www.akv.is/akvbl/frettir/2013/05/29/jardstrengir-ogni-byggdathroun/