Viljayfirlýsing um uppbyggingu koltrefjaframleiðslu í Skagafirði undirrituð í dag

Við undirritun viljayfirlýsingar um uppbyggingu koltrefjaframleiðslu í Skagafirði, í dag. F.v. Gísli Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðismanna, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Stefán Vagn Stefánsson, oddviti Framsóknarmanna og Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Svf. Skagafjarðar. Aðsend mynd.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar, skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu koltrefjaframleiðslu í Skagafirði. Samræmist viljayfirlýsingin stefnu stjórnvalda um eflingu nýfjárfestingar í íslensku atvinnulífi og samkeppnishæfni Íslands á sviði nýfjárfestingar, sérstaklega á dreifbýlum svæðum líkt og á Norðurlandi vestra.

Í viljayfirlýsingunni kemur fram að stjórnvöld munu vinna með Sveitarfélaginu Skagafirði að innviðauppbyggingu á svæðinu með það að markmiði að fá mannaflsfreka og umhverfisvæna fjárfestingu inn á svæðið. Liður í þeirri uppbyggingu er m.a. að tryggja raforkuöryggi á svæðinu með Sauðárkrókslínu 2 en framkvæmdir við lagningu hennar hófust í vor.

Sveitarfélagið Skagafjörður í samvinnu við menntastofnanir og hagsmunaaðila á svæðinu hafa verið leiðandi á Íslandi í rannsóknum og undirbúningi að uppbyggingu koltrefjaframleiðslu á Íslandi. Er það stefna Sveitarfélagsins Skagafjaðar að vera í fararbroddi á Íslandi á sviði trefjaframleiðslu og tengdrar starfsemi.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir