Vill gera Gæruna enn stærri og flottari
Gæran tónlistarhátíð fer fram á Sauðárkróki helgina 13. – 15. ágúst nk. Umsóknir frá hljómsveitum eru farnar að streyma inn en opnað var fyrir þær þann 5. febrúar sl. Nýr aðili hefur tekið að sér umsjón með hátíðinni, Adam Smári Hermannson. Þó svo hann sé ný sestur við stjórnvölinn er Adam Smári tónlistarhátíðinni ekki ókunnugur en hann hefur komið að Gærunni með einhverjum hætti frá upphafi.
Hljómsveitin Dimma á Gærunni 2014. Ljósm./BÞ
„Þetta leggst frábærlega í mig, þetta er spennandi verkefni og það sem mér finnst skemmtilegast í þessu er að geta gefið eitthvað af sér í þetta frábæra bæjarfélag sem ég var alinn upp í,“ segir Adam Smári.
Hann sonur Hermanns Agnarssonar og Geirlaugar Jónsdóttur frá Sauðárkróki en Adam Smári er nú búsettur í Reykjavík þar sem hann rekur fyrirtæki sem starfar við lýsingar í stúdíóum og hefur m.a. unnið við Ísland got Talent og Söngvakeppnina 2015.
Adam Smári segir ætlunina að nýta sambönd sín, bæði við hljómsveitir og aðra aðila, svo styrkja megi grundvöllinn fyrir því að tónlistarhátíðin stækki frá ári til árs.
Viðtal við Adam Smára er í Feyki sem kom út í dag.