Vinadagur í Árskóla - Myndir

Seinnipartinn í október var öllum grunnskólanemendum og skólahópum leikskóla í Skagafirði, ásamt nemendum FNV, boðið til vinadags í Árskóla á Sauðárkróki. Er þetta í annað árið í röð sem slíkur dagur er haldinn og er hann hluti af Vinaverkefninu sem er samstarf leik-, grunn- og framhaldsskóla, frístundasviðs og foreldra í Skagafirði. Feykir var á staðnum og tók meðfylgjandi myndir.

Það var margt til skemmtunar þennan dag og þegar Feykir leit við voru þeir Gestur Sigurjónsson grunnskólakennari í Árskóla og Logi Vigfússon danskennari að stýra dansi sem viðstaddir tóku þátt í af innlifun. Eftir nestistíma steig Svavar Knútur á stokk og ræddi um vináttu og lék hugljúfa tónlist. Dagskránni lauk svo með því að hver árgangur fyrir sig hittist og tók þátt í verkefnum sem tengdust vináttu á einhvern hátt.

Fleiri fréttir