Vöktu athygli fyrir líflega framkomu

18 stúlkur úr 3. flokki kvenna hjá Tindastól auk þjálfara og fararstjóra lögðu leið sína til Svíðþjóðar til að taka þátt í Gothia Cup sem haldið var í Gautaborg. Stelpurnar eru fæddar á árunum 1997 og 1998 (15 og 16 ára), en kepptu í G17 þar sem leikmenn eru 17 ára og mega vera með tvo eldri leikmenn. Stúlkurnar hjá Tindastól lentu á milli aldursflokka og kepptu því við eldri stelpur. Feykir hafði samband við Guðnýju Axelsdóttur og Stefaníu Birnu Jónsdóttur og fékk að heyra ferðasöguna.

Stelpurnar töpuðu öllum leikjunum í riðlinum, en gekk ágætlega í undanúrslitum. Þær komust í að keppa um átta liða úrslit á móti Lillån FK. Eftir venjulegann leiktíma var staðan 1-1, en Tindastóll tapaði í vítaspyrnukeppni 5-3.

Hápunktar ferðarinnar voru allnokkrir að sögn fararstjóranna, Guðnýjar og Stefaníu Birnu. „Þar sem þær töpuðu öllu leikjum í riðlinum þá kom það skemmitlega á óvart að komast svona langt í úrslitunum. Opunarhátíðin var mjög flott og gaman að heyra lagið “Small talks” með Monsters of men spilað aftur og aftur undir kynningum á þátttökuþjóðunum. Landsleikurinn sem þær fóru á, en þar kepptu Danmörk og Finnland. Liseberg tivolíið var heimsótt þrisvar og var alltaf jafn skemmtilegt . Að ógleymdum verslunarferðunum og öllum sætu strákunum, en stúlkurnar vöktu athygli fyrir fegurð og líflega framkomu. Þær dönsuðu línudans og Gangman style á miðbæjartorginu og sungu hástöfum "lífið er yndislegt" í sporvögnum Gautaborgar.“

Gothia cup. Ranrike.

Ferðin gekk almennt mjög vel. Veðrið var mjög gott og góður andi í hópnum.  Dvölin byrjaði reyndar ekki vel því beddar sem búið var að panta, voru ekki til staðar þegar þær mættu í skólann eftir langt ferðalag og næturflug. En stelpurnar létu það ekki á sig fá og lögðu sig bara á gólfið í skólastofunni. Eftir viku dvöl í Svíþjóð hélt hópurinn heim aftur og var alveg tilbúinn að fara aftur að ári.

Þjálfari stúlknanna er Guðjón Örn Jóhannsson og segja þær Guðný og Stefanía Birna það vera frábært að sjá hversu vel hann nái til stúlknanna bæði í leik og starfi.

Fylgdarmenn og fararstjórar voru mömmurnar Stefanía Birna Jónsdóttir, Sigurlaug Reinaldsdóttir og Guðný Axelsdóttir.

 

Fleiri fréttir