Vorgleði Karlakórsins Lóuþræla

Vorgleði Karlakórsins Lóuþræla verður haldin í dag, síðasta vetrardag 24. apríl, í Félagsheimilinu Hvammstanga og hefst hún kl. 21:00. Á dagskránni verður söngur með undirleik hljómsveitar. Kórfélagar verða einnig með stutt skemmtiatriði.

„Kaffi, kökur og kátína í boði fyrir kr. 2500. Komið og kveðjið veturinn með okkur,“ segir í fréttatilkynningu frá Lóuþrælum. Þess má geta að enginn posi verður á staðnum.

 

Fleiri fréttir