Vortónleikar Kórs eldri borgara í Húnaþing vestra
Vortónleikar Kórs eldri borgara í Húnaþingi vestra fóru fram í Nestúni á Hvammstanga í gær. Að tónleikum loknum var boðið upp á veislukaffi og voru margir sem lögðu leið sína til að njóta tónleikanna og veglegra veitinga. Kórstjóri er Ólafur Rúnarsson og meðleikari á píanó Elínborg Sigurgeirsdóttir.
Ólafur og Kristín Kristjánsdóttir sungu einsöng á tónleikunum. Dagskrá tónleikanna var sett upp sem ástarsaga, nokkurs konar óperetta, þar sem sagan var lesin upp og sungin lög sem hæfðu efninu inn á milli. Hallfríður Ósk Ólafsdóttir tók meðfylgjandi myndir og fékk Feykir góðfúslega leyfi til að birta þær.
Frá vortónleikum Kórs eldri borgara í Húnaþingi vestra. Mynd: Hallfríður Ósk Ólafsdóttir.