Vörukarfa ASÍ lækkaði hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga um 2,9% á sjö mánaða tímabili
Á vefsíðu ASÍ hafa verið birtar niðurstöður kannana sem gerðar hafa verið um verðbreytingar í nokkrum verslunum á mánaðar tímabili annars vegar og svo á sjö mánaðar tímabili hins vegar. Vörukarfa ASÍ hækkaði í verði hjá níu verslunum af fimmtán frá janúar til í loka ágúst 2013. Mesta hækkunin var hjá Iceland 5,6%. Hjá fjórum verslunum lækkaði vörukarfan á tímabilinu og hjá tveimur stóð verðið á henni nánast í stað. Mesta lækkunin var 4,2% hjá Hagkaupum en Kaupfélag Vestur-Húnvetninga lækkaði vörukarfan um 2,9%.
Vörukarfa ASÍ og vísitala neysluverðs
Á asi.is segir að til hliðsjónar megi benda á að verð á mat og drykkjarvörum í vísitölu neysluverðs hefur hækkað um 2,6% frá því í janúar þar til nú í ágúst. Þegar rýnt er í verðhækkanir verslunarkeðjanna á þessum sjö mánuðum má sjá að verðbreytingarnar eru mjög mismunandi eftir verslunum. Lágvöruverðsverslanirnar Bónus, Nettó og Iceland hækka vörukörfuna meira en aðrar verslanir. Mesta hækkun á þessu tímabili er eins og áður segir hjá Iceland 5,6%, hjá Nettó var hún 4,7%, hjá Bónus nam hækkunin 3,8%, hjá Samkaupum-Strax 3,2% og Kaupfélagi Skagfirðinga hækkaði karfan um 2,9%.
Tafla ASÍ sem sýnir verðbreytingar á vörukörfu sl. 7 mánuði.
Krónan, Nóatún, Samkaup-Úrval og Kjarval hækka vörukörfuna minna. Verð vörukörfunnar lækkar mest hjá Hagkaupum um 4,2%, hjá Tíu–ellefu um 3,5%, Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga 2,9% og Kaupfélagi Steingrímsfjarðar um 1,3%. Litlar sem engar verðbreytingar voru hjá Víði og Kaskó á þessu sjö mánaða tímabili.
Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslanakeðjunum á milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.