Vörukarfa KVH lækkað á milli ára

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað hjá 13 verslunum af 15 á landsvísu frá því í viku 5 - 2013 þar til í viku 6 2014. Fram kemur að hækkunin nemur allt að 6,8% en verðbólgan á sama tíma var um 4%. Aðeins tvær verslanir lækkuðu vörukörfuna á tímabilinu og var það m.a. Kaupfélag Vestur-Húnvetninga.

Samkvæmt vörukönnun ASÍ  hækkaði vörukarfan hækkaði mest hjá Víði um 6,8%, um 5,6% hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, 5,5% hjá Nettó og 5,4% hjá Iceland, en hún lækkaði um 2,4% hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga og 1,2% hjá Kaskó.

„Til hliðsjónar má benda á að verð á matar og drykkjarvörum í vísitölu neysluverðs hefur hækkað um 3,7% frá því í janúar 2013 þar til nú í janúar. Verslanirnar Víðir, Nettó, Iceland, Kaupfélag Skagfirðinga og Kaupfélag Steingrímsfjarðar hækkuðu meira en vísitala neysluverðs. Bónus, Krónan, Hagkaup, Nóatún, Samkaup–Úrval, 10-11, Samkaup–Strax og Kjarval hækka minna en vísitalan en hjá Kaskó og Kaupfélagi Vestur Húnvetninga hefur verð vörukörfunnar lækkað á milli ára,“ segir á vef ASÍ.

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðal heimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis.

Verðbreytingar voru skoðaðar í eftirfarandi verslunum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland; í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum-Úrvali, Tíu-ellefu, Samkaupum-Strax og Víði; í verslunum á landsbyggðinni Kjarval, Kaskó, Kaupfélagi Skagfirðinga, Kaupfélagi Steingrímsfjarðar og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.

Á vef ASÍ er tekið fram að einungis séu birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslanakeðjunum á milli verðmælinga. Ekki er um beinan verðsamanburð að ræða. Þá eru skoðuð þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.

 

Fleiri fréttir