Ylja í Hvammstangakirkju
Hljómsveitin Ylja hélt útgáfutónleika í Hvammstangakirkju sl. föstudagskvöld. Samkvæmt Norðanátt voru tónleikarnir afar notalegir og tónleikagestir ánægðir þrátt fyrir heldur dræma mætingu.
Hljómsveitin hélt svo til Akureyrar í gær þar sem hún hélt næstu útgáfutónleika. Á Norðanátt.is má skoða myndir frá tónleikunum.