Ytra-Vallholt hrossaræktarbú Skagafjarðar 2013 - Uppfært

Á Uppskerufagnaði skagfirskra hestamanna sl. laugardagsvöld var Ytra-Vallholt útnefnt hrossaræktarbú Skagafjarðar 2013, en valið grundvallaðist á árangri hrossanna Knás, Kommu og Gátu. Þau Ytra-Vallholtshjón, Björn og Harpa, fóru því heim með Ófeigsbikarinn, sem er farandgripur, er veittur er árlega af þessu tilefni.

Blær frá Miðsitju.

Sörlabikarinn hlýtur hæst dæmda kynbótahross ársins (skagfirskur uppruni og eigandi) og að þessu sinni var það stóðhesturinn Blær frá Miðsitju (8,54) sem hlaut þennan bikar og var það ræktandinn, Magnús Andrésson, sem veitti bikarnum viðtöku.

Magnús Andrésson Miðsitju.

Kynbótaknapi ársins að þessu sinni var Bjarni Jónasson og hampaði hann Kraftsbikarnum. Einnig hlutu þrjú efstu kynbótahross í hverjum flokki viðurkenningu.

Knár frá Ytra-Vallholti knapi Bjarni Jónasson.

Hjá hestaíþróttafólkinu var Mette Mannseth valin Íþróttaknapi ársins en Bjarni Jónasson reið feitum hesti frá þessu uppskerukvöldi því auk þess að vera valinn kynbótaknapi ársins nýtur hann þess einnig að hafa verið valinn gæðingaknapi- og knapi ársins.

Ásdís Ósk Elvarsdóttir

Hestaíþróttamenn ársins hjá ungafólkinu var einnig heiðrað en þar voru á ferð  Guðmar Freyr Magnússon í barnaflokki, Ásdís Ósk Elvarsdóttir í unglingaflokki og Jón Helgi Sigurgeirsson í ungmennaflokki.

Guðmar Freyr Magnússon

Jón Helgi Sigurgeirsson

 

Fleiri fréttir