Fá Reykvíkingar Jókerinn?

Besti flokkurinn nýtur ótrúlegra vinsælda í Reykjavík fyrir kosningarnar sem fram fara laugardaginn 29. maí. Þar er Jón Gnarr karlinn í brúnni og allt ágætt um það að segja. Herra Hundfúll hefur samt verið að velta því fyrir sér hvort Reykvíkingar vakni að sunnudagsmorgni með snillinginn og Jókerinn Jón Gnarr eða Georg skelfilega Bjarnfreðarson sem borgarstjóra. Og verða þá allir Reykvíkingar áður en langt um líður orðnir hugstola eins og fangavörðurinn ólánsami í Fangavaktinni?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir