Frábær árangur Norðlendinga í Bikarkeppni FRÍ í frjálsíþróttum
Sjöunda Bikarkeppni FRÍ, í frjálsíþróttum innanhúss, var háð í gær laugardaginn 16. febrúar í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Norðlendingar úr UMSS, UMSE, UFA og HSÞ tefldu nú fram sameinuðu liði í sjötta sinn. Jóhann Björn Sigurbjörnsson bætti vikugamalt héraðsmet.
Á Tindastóll.is er samantekt um mótið en þar segir að í samanlagðri stigakeppni mótsins hafi úrslit farið þannig að ÍR-a sigraði með 119 stig, í 2. sæti varð Norðurland 109,5 stig, 3. sæti FH 90 stig, 4. sæti Breiðablik 73 stig, 5. sæti HSK 59 stig og 6. ÍR-b með 50,5 stig.
Norðurland sigraði í karlaflokki með 58 stig, ÍR-a í 2. sæti með 55 stig og 3. sæti kom í hlut FH sem fékk 44 stig.
ÍR-a sigraði í kvennaflokki með 64 stig, Norðurland lenti í 2. sæti með 51,5 stig og 3. sæti hlaut FH með 46 stig.
„Einu sinni áður, árið 2011, hefur lið Norðurlands náð 2. sæti í keppninni, en aldrei áður hefur unnist sigur í öðrum kynjaflokknum. Það er ástæða til að óska norðlenska frjálsíþróttafólkinu og þjálfurunum til hamingju með glæsilegan árangur. Vonandi verður þetta hvatning, sem á eftir að smitast yfir til annarra svæða á landsbyggðinni, þar sem verið er að vinna að viðreisn frjálsíþróttastarfs,“ segir á Tindastóll.is en þar er hægt að sjá árangur Skagfirðinganna sem kepptu í norðlenska liðinu.