Frábært færi í Tindastóli
Skíðasvæði Tindastóls verður opið í dag frá kl. 13 - 19. Samkvæmt heimasíðu Tindastóls er frábært færi en í fjallinu hefur snjóað síðustu daga og í nótt.
„Um að gera að skreppa eftir vinnu og taka nokkrar bunur í fjallinu,“ segir loks á heimasíðunni.
