Tekið á móti gölluðum búningum á morgun
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
16.06.2013
kl. 13.52
Borið hefur á því að búningar sem fótboltaiðkendur hjá Tindastóli fengu nú í vor hafi verið að fækka stöfunum, eigendum sínum til hrellingar. Til þess að bæta úr þessu verður aðili frá Jako staddur á Sauðárkróki á morgun 17. júní á skrifstofu Tindastóls kl. 13-18. Þeir sem hafa fengið búninga með gölluðum merkingum fá þær leiðréttar þar en einnig er hægt að kaupa nýja búninga fyrir þá sem vantar.
