Þóranna Ósk íslandsmeistari í sjöþraut
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
22.07.2014
kl. 16.36
Meistaramót Íslands í fjölþrautum frjálsíþrótta fór fram á Laugardalsvellinum í Reykjavík helgina 19.-20. júlí.
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir, Tindastól/UMSS, varð Íslandsmeistari í sjöþraut kvenna, hlaut 4066 stig. Þóranna var eini keppandi UMSS á mótinu. Úrslit mótsins er að finna á vef Frjálsíþróttasambands Íslands.
