Þrenn verðlaun til UMSS

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum fyrir 11 – 14 ára, fór fram í Hafnarfirði helgina 22. – 23. júní. Keppendur voru 240 frá 19 félögum og samböndum.  Frá UMSS voru 6 keppendur, sem stóðu sig mjög vel, og unnu þrenn verðlaun á mótinu.

Verðlaunahafar UMSS:

Berglind Gunnarsdóttir (12): 2. sæti í kúluvarpi.

Guðný Rúna Vésteinsdóttir (11): 3. sæti í kúluvarpi.

Vala Rún Stefánsdóttir (14): 3. sæti í spjótkasti.

Í samanlagðri stigakeppni mótsins sigraði lið HSK/Selfoss með 682 stig, ÍR varð í 2. sæti með 664 stig og FH í 3. sæti með 581.  Lið UMSS varð í 11. sæti með 61,5 stig. Tindastóll.is segir frá þessu

Hér er hægt að sjá öll úrslitin.

Fleiri fréttir