Hægt að kaupa miða á Gæruna í kvöld

Lokakvöld gærunnar er í kvöld/Mynd:KSE
Lokakvöld gærunnar er í kvöld/Mynd:KSE

Gæran stendur nú sem hæst núna en í gær léku fyrir gesti, listamenn á borð við Contalgen Funeral, Ottoman, Blakkák og Páll Óskar. Góður rómur var gerður að tónlistaratriðunum. Eftir tónleikana héldu margir á ball á Mælifelli þar sem Páll Óskar skemmti fram á rauða nótt.

Í kvöld fer fram síðasta kvöld Gærunnar í ár en þar koma meðal annarra fram Lili of the Valley, Aron Hannes, Nykur og Mosi Music. Hægt er að kaupa miða á kvöldið við dyrnar. Miðinn kostar 3900. kr. Hægt er að sjá fulla dagskrá á Facebooksíðu Gærunnar 2016.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir