Heimir með hátíð um áramót

Á morgun, föstudaginn 30. desember, heldur Karlakórinn Heimir í Skagafirði sína árlegu tónleika í Menningarhúsinu Miðgarði. Í ár bera tónleikarnir yfirskriftina Hátíð um áramót.

Að vanda verður fjölbreytt og skemmtileg efnisskrá á tónleikunum og munu góðir gestir koma fram, hljómsveit úr Tónlistarskóla Skagafjarðar, Varmahlíð og þeir Hafsteinn Máni Björnsson og Jón Hjálmar Ingimarsson syngja nokkur lög með kórfélögum.

Forsala aðgöngumiða fer fram í Blóma- og gjafabúðinni á Sauðárkróki og í KS Varmahlíð og er miðaverð kr. 4000.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir