Jólastemning í sundlauginni á Skagaströnd

Alvöru stemmari á Skagaströnd. MYND AF SKAGASTRÖND.IS
Alvöru stemmari á Skagaströnd. MYND AF SKAGASTRÖND.IS

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að það styttist í jólin. Í öllu hafaríinu sem fylgir undirbúningi jólanna er það að sjálfsögðu tilvalin hugmynd að láta streituna líða úr sér í heitum potti. Á Skagaströnd taka heimamenn þetta jafnvel skrefinu lengra því fram að jólum býðst þeim sem koma í heita pottinn í sundlauginni að fá rjúkandi heitt kakó með rjómatopp í boði hússins.

Í sundlauginni á Skagaströnd er opið virka daga frá kl. 16–20 og um helgar frá kl. 13–17. Gestir eru hjartanlega velkomnir í jólastemninguna í sundlauginni.

Heimild: Skagaströnd.is

 

Fleiri fréttir