Miðasala á Snædrottninguna í fullum gangi

Á nýmáluðu kolsvörtu sviði og með nýjum sviðsbúnaði, sem hvort tveggja gefur leikhúsgestinum tækifæri á frábærri leikhúsupplifun, í Félagsheimili Hvammstanga setur Leikhópur Húnaþings vestra upp ævintýrið um Snædrottninguna. Hópur ólíkra vina leggja upp í svaðilför til að bjarga Kára frá Snædrottningunni en Kári er besti vinur Gerðu.

„Kári er munaðarleysingi en býr hjá ömmu hennar Gerðu. Hann hefur alltaf saknað mömmu sinnar og þegar hann hittir Snædrottninguna fyrst, fær hann á tilfinninguna að þar sé móðir hans kannski komin. Snædrottningin kastar á hann álögum og fer með hann heim í íshöll sína. Gerða lendir í klóm ræningjanna á leiðinni og alls óvíst að hún sleppi heil á höldnu frá ræningjaforingjanum. Mun hún ná að bjarga Kára?“

Spennan magnast hjá leikflokknum sem hvetur alla til að sjá heimsfrumsýningu af nýrri leikgerð á þessu vinsæla ævintýri H.C. Andersen, sem var innblástur fyrir höfunda Narníu saganna, Frozen, og margra annarra barnaævintýra.

Sýningarnar eru:
7. des kl 19 (heimsfrumsýning)
2. sýning - 8. des kl. 19
3. sýning - 9. des kl 17

Sýnt í Félagsheimilinu Hvammstanga 

Miðaverð er 3000 kr., 2700 kr. í forsölu til og með 1. desember og fer miðasala fram á vef Leikflokks Húnaþings vestra, www.leikflokkurinn.is/midar einnig verða miðar til sölu á jólamarkaðnum á Hvammstanga þann 1. desember.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir