Stund klámsins

Kristín Svava Tómasdóttir sagnfræðingur
Kristín Svava Tómasdóttir sagnfræðingur

Fyrirlestraröð Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna, Með sunnudagskaffinu, heldur áfram á þessu hausti. Næst mun sagnfræðingurinn Kristín Svava Tómasdóttir halda fyrirlesturinn „Stund klámsins“. Hún vinnur um þessar mundir að bók um sögu kláms á Íslandi, með sérstakri áherslu á 7. og 8. áratug 20. aldar, en fyrirhugað er að bókin komi út árið 2017.

Í fyrirlestrinum mun Kristín Svava fjalla um klámsögu og ritun hennar, ræða ýmis vandkvæði sem geta komið upp við þessa sagnaritun og gera grein fyrir helstu kenningum um sögu kláms, með völdum dæmum úr íslenskri klámsögu frá miðöldum til okkar daga.

Kristín Svava Tómasdóttir útskrifaðist með MA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2014. Hún er sjálfstætt starfandi fræðimaður í Reykjavík en starfar einnig á Landnámssýningunni í Aðalstræti.

Fyrirlesturinn er haldinn í samstarfi við Menningarfélag Húnaþings vestra, 30. október næstkomandi kl. 14:00 í nýju húsnæði félagsins, Eyrarlandi 1 (sunnanvert húsið, efri hæð). Að loknum fyrirlestri mun menningarfélagið halda kynningu á starfsemi félagsins og sýna húsnæðið, eins og frá er greint í tilkynningu frá Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna og Menningarfélag Húnaþings vestra

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir