Svipmyndir úr Sæluviku

Frá myndlistarsýningu Hallrúnar Ásgrímsdóttur í Sæluviku 2016. Í þætti Feykis og Skottufilm er m.a. fjallað um sýninguna, Íslandsmót í ísbaði, kósíkvöld í Sauðárkróksbakaríi og tónleikana Árið er.
Frá myndlistarsýningu Hallrúnar Ásgrímsdóttur í Sæluviku 2016. Í þætti Feykis og Skottufilm er m.a. fjallað um sýninguna, Íslandsmót í ísbaði, kósíkvöld í Sauðárkróksbakaríi og tónleikana Árið er.

Síðast liðið vor fékk Feykir styrk úr Uppbyggingarsjóði til framleiðslu á dægurmálaþáttum. Ákveðið var að verja honum til að gera annars vegar þátt sem sýndi svipmyndir úr Sæluviku Skagfirðinga annars vegar og hins vegar til að framleiða jólaþátt í samstarfi við nemendur í kvikmyndagerð við FNV.

Þættirnir fara nú í loftið á feykiTV. Það er upplagt að nota það sem eftir er aðventunnar, nú eða jólafríið til að líta um öxl og skoða þessi brot úr menningarlífi á Norðurlandi vestra og rifja upp eftirminnileg augnablik á árinu sem er að líða. Umsjón og handritsgerð var í höndum Árna Gunnarssonar hjá Skottafilm, Berglindar Þorsteinsdóttur fv. ritstjóra Feykis og Kristínar S. Einarsdóttur, blaðamanns hjá Feyki.

Hér að neðan má horfa á fyrri þáttinn, Svipmyndir úr Sæluviku.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir