„Það er óútskýranlega frábær stemning hérna,“ segir Taiwo Badmus

Taiwo sækir að körfu Njarðvíkinga í eftirminnilegri rimmu í úrslitakeppninni síðastliðið vor. MYNDIR: DAVÍÐ MÁR
Taiwo sækir að körfu Njarðvíkinga í eftirminnilegri rimmu í úrslitakeppninni síðastliðið vor. MYNDIR: DAVÍÐ MÁR

Taiwo Badmus er 29 ára gamall írskur landsliðsmaður, ættaður frá Kongó, sem hefur glatt stuðningsmenn körfuboltaliðs Tindastóls síðustu misserin. Kappinn slagar í tvo metrana en er engu að síður snöggur og fimur og jafn líklegt að sjá hann troða með tilþrifum eða skella í eina eldflaug utan 3ja stiga línunnar.

Þó Taiwo hafi að sjálfsögðu mest dvalið á Sauðárkróki síðustu tvö árin þá býr hann í London en ólst að miklu leiti upp á Írlandi. Hann hefur ekki bara spilað körfu því Tai hefur náð sér í gráðu í tölvunarfræði. Áður en hann kom til Íslands hafði hann spilað á Spáni í þrjú ár í Leb gulldeildinni. Nokkur ís-lensk lið höfðu samband við umboðsmanninn hans og var Tindastóll eitt þeirra.

Hvað hefur komið mest á óvart síðan þú komst til? -Veðrið var ekki eins slæmt og ég hélt. Ég bjóst við að það myndi snjóa hérna stanslaust, 24/7. Þá talar fólk hér mjög góða ensku, það er ekki mikil tungumálahindrun þegar kemur að samskiptum. Ég þurfti til dæmis að læra spænsku til að geta átt samskipti við liðsfélaga mína þegar ég var að spila á Spáni.

Er eitthvað sem hefur komið þér á óvart varðandi Tindastólsliðið eða Subway-deildina? -Ég hafði ekki miklar væntingar áður en kom fyrst í deildina en ég varð mjög hissa á hæfileikum leikmanna, getustiginu og hraðanum í deildinni. Mér líkar vel við leikstílinn hérna. Að vera hluti af liði Tindastóls er mögnuð upplifun, hvort sem við erum að tala um liðið eða stuðningsmennina, það er óútskýran-lega frábær stemning hérna.

Hver er uppáhalds liðsfélaginn þinn eða skemmtilegastur? -Mér kemur vel saman við alla liðsfélaga mína og tel mig vera góðan félaga þeirra allra. Allt frá eldri strákunum til jafnvel yngri strákanna, við skemmtum okkur vel, grínumst í hver öðrum og ég held að ég gæti ekki valið einn þó ég vildi.

Hverjar voru vonir þínar fyrir tíma þinn hér á Íslandi? -Nú á öðru ári mínu hér á Íslandi er markmið mitt að ná í titil og ég held að við séum með lið og stuðningsmenn til að ná því marki.

Hvaða körfuboltamaður hefur veitt þér innblástur á ferlinum? -Kobe Bryant er ein af mínum stóru fyrirmyndum. Keppnisharka hans og drifkraftur var engu lík. Hann leitaðist alltaf við að verða betri á hverjum einasta degi, sama hvað, og það eru þeir eiginleikar sem ég myndi vilja þróa með sjálfum mér.

Hvað gerir þú á Sauðárkróki fyrir utan að spila körfubolta? -Flesta daga á Sauðárkróki er ég í ræktinni tvisvar á dag, nánast daglega. Mér finnst gott að eyða extra tíma í að hugsa um líkama minn. Þetta felur í sér lyftingar, teygjur, heitan pott og köld böð. Þegar ég er ekki að spila körfubolta finnst mér líka gaman að halda mér við í tölvunáminu svo ég gleymi ekki því sem ég hef lært. Þegar ég er ekki að gera neitt af þessu þá finnst mér gaman að slaka á og annað hvort horfa á kvikmyndir eða sjónvarpsþætti.

Hefur þú getað heimsótt einhverja af helstu ferðamannastöðum Íslands? -Ég hef haft tíma til að skoða nokkra baðstaðina í kringum landið. Ég hef líka haft tækifæri til að heimsækja nokkra fossa. Ég elska náttúruna á Íslandi.

Geturðu skemmt þér vel utan körfuboltans, verið í félagsskap þeirra sem eru í körfunni eða fótboltanum? -Mér líkar við samfélagið hér, ég eyði tíma með körfuboltamönnum en ég hef líka kynnst mörgum úr fótboltanum og alls konar fólki innan samfélagsins.

Hvað hefur verið erfiðast við dvöl þína á Íslandi? -Dimmir vetur eru sennilega erfiðastir.

Ertu spenntur fyrir restinni af tímabilinu undir stjórn nýs þjálfara og heldurðu að liðið geti náð langt í úrslitakeppninni? -Þetta hefur verið upp og niður tímabil en auðvitað er ég alltaf jákvæður og trúi því að við getum náð þeim markmiðum sem við settum okkur. Pavel er ekki bara frábær þjálfari heldur er hann frábær náungi og var frábær leikmaður. Ég ber mikla virðingu fyrir keppnisskapi og sigurvilja hans sem ég fann þegar ég spilaði gegn honum í fyrra og finnst ég upplifa aftur núna hjá honum sem þjalfara. Hann þekkir deildina og liðið okkar mjög vel. Ég er svo sannarlega spenntur fyrir því hvert við getum farið í þessa ferð ásamt allri þekkingu hans og reynslu.
 
- - - - - 
Viðtalið við Taiwo Badmus birtist fyrst í 7. tölublaði Feykis 2023.
Myndirnar hér að neðan eru allar úr safni meistara Davíðs Más.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir