Umhverfisviðurkenningar Skagafjarðar 2026
Umhverfisviðurkenningar Skagafjarðar voru veittar þann 3. september sl. í Húsi Frítímans. Sveitarfélagið og Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar hafa í 22 ár unnið að því saman að velja og veita þessar viðurkenningar til bæði einstaklinga og fyrirtækja. Guðlaugur Skúlason formaður landbúnaðar- og innviðarnefndar fór með ræðu fyrir hönd sveitarfélagsins að þessu sinni.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Tígris rækjuréttur og sykurpúðasalat | Matgæðingar Feykis
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Í matinn er þetta helst, Lokað efni 11.09.2026 kl. 10.41 siggag@nyprent.isÞað er Anna Birna Björnsdóttir og eiginmaður hennar Egill Birkir Sigurðsson sem eru matgæðingar vikunnar í tbl. 18. Anna Birna og Egill Birkir eiga heima í Kópavoginum ásamt Íslenska fjárhundinum Týru en þar hafa þau búið í 12 ár. Egill er fæddur á Patreksfirði en flutti ungur á Krókinn með móður sinni Rögnu Jóhannsdóttur, stjúpi hans er Pétur Valdimarsson. Anna Birna er einnig fædd og uppalin á Króknum og er dóttir Badda múrara, seinna Baddi í íþróttahúsinu og Siggu Gísla, dóttur Fjólu Sveins og Gísla Gunnars.Meira -
Fjölmargir tóku þátt í Fjölskylduhlaupinu
Í gær fór fram á Sauðárkróki Fjölskylduhlaup í tilefni af Gulum september en gulur er litur sjálfsvígsforvarna. Hlaupið var frá sundlauginni en einnig máttu þátttakendur ganga eða hjóla. Ágæt þátttaka var í hlaupinu en þó mögulega heldur færri en árið á undan. Feykir var á staðnum og smellti nokkrum myndum af hlaupagikkum af ýmsu tagi.Meira -
„Þetta eru leikirnir sem allir vilja spila“ segir Konni
Síðustu umferðirnar hjá meistaraflokkunum hér á Norðurlandi vestra fara fram á morgun, laugardaginn 12. september. Lið Kormáks/Hvatar mætir Fjölni á Blönduósi og kvennalið Tindastóls hittir fyrir Hauka í Hafnarfirði. Örlög þessara liða eru ráðin en á Króknum er mikið undir þegar Tindastólsmenn taka á móti deildarmeisturum Víðis í Garði. Með sigri eiga Stólarnir séns á að komast upp í 2. deild en þá þarf lið KF að hafa stig af KH á Ólafsfirði. Feykir heyrði í Konna þjálfara.Meira -
Engin verðbólga í Húnaþingi vestra
Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra bauð félögum sínum til fjölmennrar grillveislu í gær. Grillað var úti í hádeginu fyrir utan samfélagsmiðstöðina Glaumbæ sem er til húsa á neðri hæð Félagsheimilisins á Hvammstanga. Á boðstólum var gómsætt lambakjöt frá Sláturhúsi SKVH á Hvammstanga ásamt tilheyrandi meðlæti og drykkjum. Verðið á krásunum var ekki verðbólguhvetjandi því þátttakendur greiddu aðeins 1.000 krónur og gátu etið að vild.Meira -
Myndasyrpa frá Höskuldi B. úr Auðkúlurétt
Þessar vikurnar er réttað út um víðan völl ef svo má segja. Fjárréttir verða á átta stöðum dagana 12. til 14. september í Skagafirði og réttað verður í Kleifnarétt í Fljótum í dag. Þá verður réttað á sjö stöðum í Húnavatnssýslum 11.-14. september en réttað er í Sveinsstaðarétt í Austur-Hún í dag og hófust réttarstörf þar reyndar kl. 10 í morgun.Meira
