Byggðasafn Skagfirðinga tilnefnt til Íslensku safnaverðlaunanna 2016
feykir.is
Skagafjörður, Mannlíf
19.05.2016
kl. 09.14
Byggðasafn Skagfirðinga hefur verið tilnefnt til Íslensku safnaverðlaunanna 2016, ásamt Listasafni Reykjavíkur – Ásmundarsafns og sýningarinnar Sjónarhorns. Íslensku safnaverðlaunin er viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Tilkynnt var um tilnefningarnar í Safnahúsinu við Hverfisgötu í gær, þegar Alþjóðlegi safnadagurinn á Íslandi var haldinn hátíðlegur.
Meira
