17. júní hátíðarhöld í Akrahreppi
feykir.is
Skagafjörður
14.06.2021
kl. 11.30
Kvenfélag Akrahrepps og Akrahreppur munu bjóða hreppsbúum upp á pylsur og kaffi í Héðinsminni milli klukkan 11.45-14.00 að lokinni messu á Miklabæ sem hefst kl.11.00.
Hópakstur fornbíla mun koma við í messunni á Miklabæ og í Héðinsminni en það hefur verið árlegur viðburður í nokkur ár að frumkvæði Agnars á Miklabæ og Jóns í Miðhúsum.
/SMH