„Algjört möst að nota primer á húðina áður en þú setur farðann á“

Ísabella Guðmundsdóttir er fædd árið 1994, útskrifaður förðunarfræðingur úr Reykjavík Make Up School og er búsett í Breiðholtinu. Hún vinnur á leikskólanum Sjálandi í Garðabæ og stefnir á háskólanám í haust. Feykir spurði Ísabellu út í hennar daglegu förðunarrútínu.

Hver eru þín helstu áhugamál?
Mitt helsta áhugamál er fyrst og fremst förðun og allt sem tengist því, svo hef ég mikinn áhuga á tísku og hönnun, sem og að ferðast og skemmta mér í góðra vina hópi eða með yndilsegu fjölskyldunni minni.

11005783_10155187139900573_77347583_n

Hver er þín daglega förðunarrútína?
Ég mála mig nú yfirleitt ekki dags daglega, en á venjulegum degi væri það:
1. Cover All Mix frá Make Up Store til að hylja baugar og roða í húðinni.
2. CC krem frá Loréal sem dregur úr roða úr húðinni, eða MAC Face and Body Foundation.
3. Sólarpúður frá Make Up Store í Sun Touched.
4. Maskarinn Telescopis frá Loréal og They‘r real maskari frá Benefit.
5. Í augabrúnir nota ég Anastasia Beverly Hills Dipbrow í litnum Auburn.
Svo ef ég vil aðeins meira set ég brúnan eyeliner inn í vatnslínuna í augunum, það gefur manni aðeins meira „glam“ en ekki of mikið eins og mér finnst stundum svartur eyeliner vera.

Dagleg rútína, myndir

Hver er þín uppáhalds förðunarvara?
Cover All Mix og Wonderpowder frá Make Up Store.

Hvenær byrjaðir þú að farða þig?
Ég byrjaði sennilega svona 12 ára gömul að stelast í snyrtibudduna hjá mömmu þegar hún var ekki heima. Svo þegar ég var 13 ára skráði mamma mig í áskrift af tímariti sem var til þá og hét Nýtt Útlit. Þar var manni kennt að farða sig og hugsa um húðina, og ég þakka henni mikið fyrir það í dag. En ætli það hafi ekki verið í kringum fermingaraldurinn sem ég byrjaði að mála mig eitthvað af viti og fara út úr húsi máluð.

Förðun eftir Ísabellu Förðun eftir Ísabellu

Hvað var þitt versta „förðunarslys“?
Þegar ég var fyrst að byrja að mála mig og maskaraði mig fyrst og notaði svo augnhárabrettara og reif af mér nokkur augnhár.

Hvað er þitt helsta náttúrulega leyndarmál að betra útliti?
Þurrar varir er eitthvað sem að líklegast flestir eru að glíma við núna yfir vetrartímann og þess vegna mæli ég með því að bera vaselín á varirnar áður en þið byrjið að farða ykkur og gera hárið á ykkur fínt,  og þurrka svo vaselínið af í lokin og setja varalitinn á. Þá verða varirnar orðnar voða mjúkar og fínar. En svo verð ég að segja góð umhirðun húðar eins og svo margir aðrir. Í förðunum finnst mér húðin vera númer 1,2 og 3. Ég mæli með Tea Tree línunni úr The Body Shop, í henni er sápa, toner, rakakrem og olía. Ég hef aldrei séð jafn fljóta og góða breytingu á húðinni minni eins og þegar ég byrjaði að nota þessar vörur. Svo langar mig líka að mæla með Clarisonic rafmagnsburstunum. Þeir hreinsa húðina svo vel og það er hægt að nota þá bæði á andlit og líkama. Ég mæli með að fólk kynni sér þá.

tea tree

Lítur þú upp til einhvers einstaklings þegar kemur að förðun?
Já, ég fylgist rosalega mikið með förðunarfræðingum á Instagram, og þá aðallega Hulda beauty, Make Up by Mario, Iluvsarahii, Patrickta, Joyce Bonelli og Sjblife. Þetta eru svona helstu förðunarfræðingar Hollywood stjarnanna.

Instagram förðunarfræðingar

Ef þú mættir velja hvern sem er í heiminum til að kíkja í snyrtitöskuna hjá, hvern myndir þú velja?
Make Up by Mario og Patrickta.

Eitthvað að lokum?
Það er algjört möst að nota primer á húðina áður en þú setur farðann á, og þar mæli ég með Smashbox Photofinish. Og setja líka á augun áður en settur er augnskuggi, það kemur í veg fyrir að augnskugginn fari í línur, dregur fram litinn í augnskugganum og hann endist lengur. Þar mæli ég með Make Up Store Eyeprimer Clear.
Svo langar mig að mæla með nokkrum vörum fyrir lesendur, en þær eru þessar:
1. Cover All Mix frá Make Up Store, sem er hyljari.
2. Strobe Cream frá MAC, þú blandar því við farðann á handabakinu með eyrnapinna og þá færðu fallegan gljáa á húðina.
3. Wonderpowder frá Make Up Store, það er púður með fallegri sanseringu og gefur fallegan gljáa, algjör must have finnst mér.
4. Svo að lokum er það Cake eyelinerinn frá Make Up Store, smitar ekkert út frá sér og dofnar ekki og verður grár, algjör snilld!

Mæli með

Svo langar mig að minna á síðuna mína á Facebook: Make Up By Isabella.

Make Up By Isabella

Fleiri fréttir