Allir verða boðaðir í bólusetningu

Frá bólusetningu á HSN á Sauðárkróki í síðustu viku. Mynd: PF.
Frá bólusetningu á HSN á Sauðárkróki í síðustu viku. Mynd: PF.

Eftir bólusetningu á heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki í síðustu viku hafa hátt í þúsund manns verið bólusett með fyrri sprautu og vel á fjórða hundrað fullbólusett. Kristrún Snjólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur á Sauðárkróki, segir bólusetningu ganga vel. Margir hafa samband til að forvitnast um sína stöðu en Kristrún vill benda fólki á að haft verði samband við alla þegar röðin komi að þeim.

„Það er mikið hringt og spurt um bólusetningar, hvenær röðin sé komin að viðkomandi og það veldur gríðarlegu álagi á stofnuninni. Unnið er eftir tilmælum frá sóttvarnarlækni og þeirri forgangsröðun sem hann leggur upp með. Það fá því allir boð þegar röðin er komin að þeim,“ segir Kristrún.

Eins og annars staðar á landinu var byrjað á að bólusetja íbúa hjúkrunarheimila og starfsfólk í framlínunni. Síðan var fólk í heimahjúkrun, dagdvöl og íbúar á sambýlum boðað í sprautu og núna er búið að klára árgang 1951 og eldri að mestu. „Við erum komin í 65 til 69 ára með undirliggjandi sjúkdóma, og langt komin með það í rauninni, og með fólk sem er á líftæknilyfjum en það fólk er oft með skertar varnir og viðkvæmara.“

Kristrún segir að í síðustu viku hafi verið byrjað með hóp sem heitir 18 – 64 ára með undirliggjandi sjúkdóma og verður haldið áfram í þessari viku. „Þeim hóp er svo skipt upp í tvo hópa, 1 og 2, en í þeim fyrri eru þeir sem glíma við alvarlegri sjúkdóma og þurfa að komast fyrr að“.

„Þetta potast hjá okkur“
Kristrún segir að nú séu yfir 1000 manns komnir með hálfa bólusetningu og um 500 að fullu bólusettir. Alltaf séu einhverjir sem ekki vilja þiggja bólusetningu og sumir hafa alfarið hafnað því. Kristrún segir það ekki stóran hóp en fáeinir vilji aðeins fá að sjá til. „Svo er einn og einn sem er í forgangshópi en vill frekar koma þegar hans aldurhópur verður bólusettur eða telur sig ekki þurfa að vera í forgangi,“ segir hún.

Mikil umræða hefur farið fram í þjóðfélaginu um aukaverkanir af bólusetningu, Kristrún segist vel skilja ótta fólks en tekur fram að ekki hafa komið upp alvarlegar aukaverkanir hér á stofnuninni. „Það hafa margir hringt og spurt um þetta og mér finnst það bara mjög eðlilegt að fólk vilji fá upplýsingar. Við vinnum bara eftir því sem sóttvarnalæknir leggur fyrir hverju sinni. Það hafa ekki komið upp nein slík atvik á HSN og hingað til hefur gengið mjög vel og engin ofnæmisviðbrögð komið fram við bólusetningu. Fólk hefur verið afskaplega þakklátt og ánægt með að fá bólusetningu.“

Kristrún segir dæmi um væg einkenni eftir bólusetningu. „Núna erum við að sprauta með Pfizer en það er ekki algengt að fólk verði veikt í fyrri sprautu en það eru dæmi um það í þeirri seinni en alls ekki allir. Með Astra var þó nokkuð um veikindi eftir fyrri sprautuna, það voru flensueinkenni. Stundum er talað um höfuðverk í einhverja daga en ekki nein verri eftirköst.

Oftast er bólusett í hverri viku en Kristrún segir að það hafi stundum dottið út vika en þá hafa efni ekki borist. „Ég vona að þetta verði reglulegt núna og mér heyrist að það verði þónokkur törn fyrri parts sumars. Það er misjafnt hvað koma margir skammtar á viku en oftast hefur þetta verið í kringum 100 skammtar.“

Hvað verður um þann sem fær boð en kemst ekki?
„Ef það er þannig að viðkomandi kemst ekki út af einhverjum óviðráðanlegum orsökum þá boðum við hann næst. En ef fólk vill ekki akkúrat þetta efni sem í boði er og vill fá eitthvað annað þá færist sá hinn sami aftar á listann. Enn sem komið er getur maður ekki valið bóluefni sjálfur.“

Enn er það svo að þau sem fengið hafa Covid þurfa ekki sprautu en sem betur fer er sá hópur smár í héraðinu. „Þeir eru ekki margir hér en samt nokkrir og eru merktir á listann með mótefni þannig að við erum ekki að boða þá að svo stöddu. En það verður örugglega tekin einhver afstaða hvort einhverjar mótefnamælingar verði framkvæmdar,“ segir Kristrún að lokum. Hún vill ítreka að allir verði boðaðir þegar kemur að þeim og óþarft að hringja til að skrá sig í bólusetningu.

Fleiri fréttir