Alþjóðleg brúðulistahátíð á Hvammstanga

Hvammstangi International Puppet Festival, HIP, er ný brúðulistahátíð á Hvammstanga, þar sem brúðuleiksýningar og -kvikmyndir verða í hávegum hafðar. Hátíðin verður haldin 9. - 11. október en á hátíðinni verður boðið upp á tólf sýningar með listamönnum af níu þjóðernum, úrvali vinnusmiðja fyrir fólk á öllum aldri, bæði byrjendur og atvinnumenn, og úrval brúðubíómynda sem eru sérvaldar af Handmade Puppet Dreams, fyrirtæki Heather Henson í Bandaríkjunum. Yfir 60% viðburða hátíðarinnar eru ókeypis fyrir áhorfendur en alla dagskrá hennar má nálgast á www.thehipfest.com.

Það er verðlaunaleikhús Gretu Clough á Hvammstanga, Handbendi brúðuleikhús, sem stýrir brúðulistahátíðinni HIP.

Hátíðin er haldin annað hvert ár og býður m.a. upp á:
•           Uppfærslur á litlum – miðlungsstórum verkum eftir heimafólk og alþjóðlega listamenn fyrir bæði börn og fullorðna.
•           Lifandi tónlistarviðburði.
•           Masterclass fyrir fagmenn og áhugasama um brúðugerð.
•           Sýningar og smiðjur fyrir börn og fullorðna.
•           Leikbrúðu-stuttmyndir og myndir í fullri lengd.
•           Fyrirlestrar og viðburðir til tengslamyndunar, þar á meðal UNIMA "focus group"

Handbendi brúðuleikhús hefur einnig verið með sýningar, viðburði og smiðjur á Íslandi og víðsvegar í heiminum, og öll vinna farið fram í vinnustofu Handbendi brúðuleikhúss á Hvammstanga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir