Anna Valgerður sigraði Söngkeppni NFNV 2015
Söngkeppni Nemendafélags FNV fór fram sl. föstudagskvöld. Fjöldi glæsilegra atriða voru á sviðinu í Sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra þetta kvöld en það var Anna Valgerður Svavarsdóttir sem sigraði með flutningi sínum á laginu góðkunna, House of the Rising Sun, og verður það framlag skólans á Söngkeppni framhaldsskólanna í vor.
„Ég hafði ótrúlega gaman af því að sýna hvað ég get og mér fannst þetta mjög skemmtilegt,“ segir Anna Valgerður í samtali við Feyki.
Nánar verður fjallað um Söngkeppnina í Feyki vikunnar.