Athugað með hvítabjarnarspor á Skaga
Lögreglan á Norðurlandi vestra fékk ábendingu um torkennileg spor í nágrenni sveitabæjar norðarlega á Skaga seint sl. laugardagskvöld og vöknuðu grunsemdir þá þegar að hugsanlega væri um ísbjarnarspor að ræða. Lögreglan fór á vettvang á sunnudagsmorgun og voru ummerkin mjög ógreinileg, segir á Facebooksíðu lögreglunnar, og erfitt að meta eftir hvað umrædd för væru.
„Ákveðið var að grennslast fyrir og leitaði lögreglan allan sunnudaginn 12. apríl, umhverfis sporin og næsta nágrenni sem og á Skagaheiði án þess að verða vör við nokkur önnur spor eða nokkur önnur þau ummerki sem gætu stutt grunsemdir um að hvítabjörn væri á sveimi. Ljóst er að sporin eru nokkurra daga gömul og mögulega frá því á þriðjudeginum 7. apríl. Því var sú ákvörðun tekin að ekki væri grundvöllur til frekari aðgerða að hálfu lögreglu,“ segir í færslunni.
Fólk er beðið um að að hafa samband við lögregluna í síma 112 ef einhverjir kynnu búa yfir frekari upplýsingum varðandi þetta mál.