Aukin þjónusta við krabbameinsgreinda á landsbyggðinni

Við undirritun samningsins Elsa. B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins. Aðsend mynd.
Við undirritun samningsins Elsa. B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins. Aðsend mynd.

Síðastliðinn föstudag 28. ágúst, var stigið mikilvægt skref í að bæta endurhæfingarferli krabbameinsgreindra á landsbyggðinni með undirritun samnings Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og Heilbrigðisráðuneytis við Ljósið um fjarheilbrigðisþjónustu í endurhæfingu krabbameinsgreinda. Þeir sem greinast með krabbamein og eru búsettir á landsbyggðinni hafa hingað til í litlum mæli haft kost á að nýta sér þjónustu Ljóssins, enda er hún eins og sakir standa nær eingöngu aðgengileg í húsnæði Ljóssins að Langholtsvegi í Reykjavík.

Samkvæmt tilkhynningu frá Ljósinu hljóðar samningurinn upp á 34 milljónir króna og hefur það að markmiði að veita fólki með krabbamein, sem búsett er á landsbyggðinni, og aðstandendum þeirra þjónustu með rafrænum hugbúnaði og bæta aðgengi íbúa um land allt að starfsemi Ljóssins.

Styrkurinn er veittur á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, en ein af aðgerðum hennar er að efla fjarheilbrigðisþjónustu. Samningurinn er í takt við áherslur í heilbrigðisstefnu stjórnvalda um að bæta aðgengi að heilbrigðisþjónustu með innleiðingu á fjarheilbrigðislausnum.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Elsa. B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu og Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins undirrituðu samninginn í dag í húsakynnum Ljóssins við Langholtsveg.

„Það er afskaplega þýðingarmikið að íbúar á landsbyggðinni eigi tækifæri á að nýta sér endurhæfingarþjónustu Ljóssins til viðbótar við heilbrigðisþjónustu heima í héraði. Starfsfólk Ljóssins hefur unnið ómetanlegt starf á síðustu fimmtán árum og fyrir það ber að þakka,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Aukin fagleg þjónusta

Um er að ræða tilraunaverkefni til tveggja ára og munu fjármunirnir gera sérfræðingum Ljóssins kleift að auka faglega þjónustu í gegnum fjarfundabúnað og efla samvinnu við aðra fagaðila á landsbyggðinni.

Ljósið hefur frá stofnun lagt metnað í að þróa þjónustuna að þörfum notenda og mun nú með samningum verið gert kleift að auka faglega þjónustu sérfræðinga sinna til íbúa landsbyggðarinnar í gegnum fjarfundabúnað. Auk þess verður leitast við sem mestri samvinnu fagaðila á landsbyggðinni.

„Samningurinn er mikilvægt skref í að bæta endurhæfingarferli krabbameinsgreindra um allt land. Þeir sem greinast með krabbamein og eru búsettir á landsbyggðinni hafa aðeins í litlum mæli átt kost á að nýta sér þjónustu Ljóssins hingað til,“ segir Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins.

Ljósið fagnar 15 ára afmæli

Ljósið, sem fagnar 15 ára afmæli í ár, er heilbrigðisstofnun með heimilislegu og notalegu yfirbragði. Þjónustan er fjölbreytt og hugsuð fyrir þann sem greinist, og nánustu fjölskyldumeðlimi.

Markmið með þjónustunni er að veita endurhæfingu í kjölfar greiningar, að viðhalda andlegu og líkamlegu þreki, fræða um bjargráð, ýta undir virkni og félagslega þátttöku.

Í Ljósinu starfar þverfaglegt teymi sérfræðinga og má þar nefna iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara, íþróttafræðinga, sálfræðinga, markþjálfa, næringarráðgjafa og fleiri sem munu koma að verkefninu.

Fleiri fréttir