Besta afkoma KS í 130 ára sögu félagsins
Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga var haldinn sl. laugardag en rekstur félagsins á síðasta ári samanstóð af sömu fyrirtækjum og mynduðu rekstrarsamstæðu þess árið á undan. Rekstrarhagnaður 2018 eftir skatta er 5 milljarðar og eigið fé við árslok um 34 milljarðar króna.
Í inngangsorðum Þórólfs Gíslasonar, kaupfélagsstjóra, kom fram að öflug framleiðsla í sveitum Skagafjarðar væri forsenda jákvæðrar byggðaþróunar í dreifbýli héraðsins. „Leggja ber áherslu á að í engu má kvika frá arðbærum rekstri og til að vera samkeppnishæft þarf félagið að hafa á að skipagóðu starfsfólki og framsæknum en raunsæjum stjórnendum. Mikilvægt er að góð samstaða haldist um fyrirtækið og hagsmunir þess séu settir framar einstaka persónum eða þröngum hagsmunum í víðtækri merkingu,“ sagði Þórólfur.
Umhverfismál voru mikið í umræðunni á fundinum og var samþykkt að vinna umhverfisstefnu fyrir félagið. Afmælisnefnd er að störfum og nú þegar er búið að halda tónleika í Miðgarði og afsláttardagur var í Skagfirðingabúð. Verður 130 ára afmæli KS fagnað í Skagafirði út árið. Samþykkt var að veita 25 milljónum króna í Menningarsjóð KS og Bjarni Maronsson, stjórnarformaður endurnýjaði umboð sitt í stjórn ásamt Sigríði Gunnarsdóttur.
Tengd frétt: Kaupfélag Skagfirðinga 130 ára í dag