Byltingarkenndur þjarkur í þjónustu FISK Seafood

Fyrir helgi var gengið frá kaupum á pökkunarróbót sem FISK Seafood ráðgerir að taka í notkun í vinnslusal sinn á Sauðárkróki undir haustið. Róbótann þróaði hátæknifyrirtækið Valka sérstaklega fyrir FISK Seafood sem segir á heimasíðu þess það fyrsta sinnar tegundar sem flokkar, vigtar og pakkar frosnum flökum.
„Það er FISK Seafood mikil ánægja að ganga frá þessum stóra og metnaðarfulla samningi á þessum erfiðu tímum í samfélaginu. Tímasetningin er e.t.v. táknræn fyrir það að bæði er farið að sjá örlítið til sólar í veirufaraldrinum og sömuleiðis í vorinu sem bankar stöðugt upp á hjá okkur þessa dagana,“ segir á fisk.is og að kaupin á nýju pökkunarvélinni séu enn ein staðfesting þess að FISK Seafood hugsar og fjárfestir til langrar framtíðar. „Hagræðingin er fyrst og fremst fólgin í nákvæmni við vigtun en enginn vafi er á að yfirvigtin verður minni en með mannshöndinni og hvert prósentustig í þeim efnum skiptir gríðarlegu máli fjárhagslega. Sömuleiðis sparast mannskapur við færibandið og þær hendur verða kærkomnar í öðrum mikilvægum verkefnum í vinnslunni.“
Ágúst Sigurðarson, markaðsstjóri Völku, var ánægður með viðskiptin og sagði 17. apríl verða fyrirtækinu ógleymanlegur dagur þar sem um fyrstu pökkunarvélina af þessu tagi væri að ræða sem við hönnuð er fyrir frosin flök. „Ef vel tekst til gefur hún vafalaust tóninn til langrar framtíðar sambærilegra véla víða um heim,“ sagði hann við undirritun samningsins.