Draupnir/Þúfur keppa í KS-Deildinni 2015
Meistaradeild Norðurlands kynnti til leiks fyrir helgi sjötta og jafnframt síðasta lið vetrarins, en það er Draupnir/Þúfur. Fyrir þessu liði fer Mette Moe Mannseth og með henni í liði eru Barbara Wenzl, Gísli Gíslason og Þorsteinn Björnsson.
„Þarna eru mjög sterkir knapar á ferðinni sem búa án efa yfir góðum hestakosti,“ segir á facebook-síðu KS-Deildarinnar.
Hin liðin sem keppa í KS-Deildini og hafa verið kynnt til leiks eru: Efri – Rauðalækur / Lífland, Hofstorfan / 66° norður, Hrímnir, Top Reiter og Íbess – Gæðingur.