Enginn í einangrun á Norðurlandi vestra

Sannarlega hefur stórum áfanga verið náð í Covid baráttunni á Norðurlandi vestra þar sem allir 35 sem smituðust af kórónaveirunni hafa náð bata og því enginn skráður í einangrun á svæðinu, samkvæmt upplýsingum frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra.

Á meðfylgjandi mynd má sjá að einungis þrír sitja í sóttkví á Norðurlandi vestra, tveir á Sauðárkróki og einn á Blönduósi en 469 manns hafa lokið henni. En eins og fram kemur í tilkynningunni má alls ekki sofna á verðinum: „Öll verðum við að vera á tánum því að þetta er langhlaup. Hlýðum Víði!“

Fleiri fréttir