Fanney Dögg liðsstjóri Mountain Horse

Sjötta og næst síðasta liðið sem kynnt er til leiks fyrir KS-Deildina 2016 er lið Mountain Horse. Liðstjóri er Fanney Dögg Indriðadóttir og með henni eru Elvar Logi Friðriksson, Hallfríður S. Óladóttir og Hans Þór Hilmarsson. „Þarna er athyglisvert lið á ferðinni,“ segir í fréttatilkynningu frá Meistaradeild Norðurlands.  

Þrír knaparnir eru búsettir í V-Húnavatnssýslu og þau hafa fengið til liðs við sig hinn þekkta knapa Hans Þór Hilmarsson. 

„V-Húnvetningar eru alltaf vel ríðandi og þegar Hans Þór hefur bæst í hópinn verður spennandi að fylgjast með þessu liði í vetur,“ segir loks í tilkynningunn

Fleiri fréttir