Flugeldasala björgunarsveitanna á Norðurlandi vestra
Björgunarsveitirnar standa að vanda fyrir flugeldasölu fyrir áramótin og er hún í flestum tilfellum þeirra stærsta fjáröflunarleið. Vafalaust er mörgum í mun að styðja vel við bakið á sveitunum eftir fórnfúst starf þeirra í óveðrinu sem geisaði í fyrr í desember og er öllum í fersku minni. Það má gera með því að kaupa flugelda björgunarsveitanna en einnig er hægt að styrkja sveitirnar með beinum fjárframlögum hafi fólk ekki í hyggju að kaupa flugelda. Flugeldamarkaðirnir hér um slóðir opna flestir í dag og verða þeir opnir sem hér segir:
Björgunarsveitin Grettir verður með flugeldasölu í húsi björgunarsveitarinnar á Hofsósi (gengið inn að vestan).
- Laugardag 28. des. klukkan 16-21.
- Sunnudag 29. des. klukkan 10-22.
- Mánudag 30. des. klukkan 10-22.
- Þriðjudag 31. des. klukkan 10-14.
Á Sauðárkróki eru Björgunarsveitin Skagfirðingasveit og Skátafélagið Eilífsbúar með sölu í húsi björgunarsveitarinnar að Borgarröst 1.
- Laugardag 28. des. klukkan 13-22.
- Sunnudag 29. des. klukkan 10-22.
- Mánudag 30. des. klukkan 10-22.
- Þriðjudag 31. des. klukkan 10-16.
- Mánudag 6. jan. (þrettándinn) klukkan 15-19.
Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð er með sinn markað í húsi sveitarinnar í Varmahlíð.
- Laugardag 28. des. klukkan 13-22.
- Sunnudag 29. des. klukkan 11-22.
- Mánudag 30. des. klukkan 10-22.
- Þriðjudag 31. des. klukkan 10-14.
Flugeldasala Björgunarfélagsins Blöndu verður að Hafnarbraut 6 á Blönduósi.
- Laugardag 28. des. klukkan 16-20.
- Sunnudag 29. des. klukkan 14-22.
- Mánudag 30. des. klukkan 14-22.
- Þriðjudag 31. des. klukkan 10-14.
- Mánudag 6. jan. (þrettándinn) klukkan 16-18.
Björgunarsveitin Húnar er með flugeldasölu sína í Húnabúð á Hvammstanga.
- Laugardag 28. des. klukkan 10-22.
- Sunnudag 29. des. klukkan 10-22.
- Þriðjudag 31. des. klukkan 9-16.
Á Skagaströnd verða Björgunarsveitin Strönd og Umf. Fram með flugeldasölu sína í húsnæði Rauða krossins að Oddagötu 4.
- Laugardag 28. des. klukkan 18-20.
- Sunnudag 29. des. klukkan 16-22.
- Mánudag 30. des. klukkan 16-23.
- Þriðjudag 31. des. klukkan 11-15
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.