Frá Seattle í sveitasæluna í Skagafirði

Í Flatatungu á Kjálka í Skagafirði býr ein af „tengdadætrum Skagafjarðar“, sem kemur að eigin sögn héðan og þaðan. Hún kennir m.a. ensku, leiklist og myndlist við Varmahlíðarskóla, fæst við þýðingar í hjáverkum en syngur og prjónar í frístundum.

Söngferillinn hófst með sturtusöng en vatt upp á sig og varð að heilum kór. Íris Olga Lúðvíkdsdóttir er í opnuviðtali Feykis, en blaðamaður hitti hana önnum kafna á milli kennslustunda og kóræfinga fyrir tónleika Sóldísar á konudaginn.

Aðspurð hvernig kórinn varð til segir Íris Olga: „Ég hef sagt frá því nokkrum sinnum en það var bókstaflega þannig að Drífa kom í kaffi til mín um sumarið 2010 og spurði hvort við ættum ekki að stofna kvennakór, hún og Sigurlaug frænka hennar væru búnar að velta þessu fyrir sér.“

Íris Olga tók vel í hugmyndina og þær gæddu sér á kaffi og kökum og héldu áfram að spjalla um eitthvað annað. „Viku seinna var Drífa búin að redda undirleikara og kórstjóra og finna húsnæði. Þetta gekk nokkurn veginn þannig fyrir sig og svo fór hún að reka á eftir mér að búa til auglýsingu til að setja í Sjónhornið. Hún er ekkert að hangsa með hlutina.“

Íris Olga er í opnuviðtali 7. tölublaðs Feykis sem kom út í dag. 

Fleiri fréttir