Frá Skagafjarðarveitum
Í tilkynning frá Skagafjarðarveitum til notenda austan þjóðvegar við Varmahlíð, í Hólminum og Akrahreppi. Vegna tenginga við stofnlögn verður lokað fyrir heita vatnið á þessu svæði þriðjudaginn 3. sept. frá kl. 9 og fram eftir degi.
Fleiri fréttir
-
Gestir fóru með ljós í sinni út í skammdegisnóttina
Í gærkvöldi fóru fram jólatónleikar Skagfirska kammerkórsins í Hóladómkirkju. Á dagskrá voru gömul og góð jólalög í bland við nýrri, m.a. var nýtt jólalag frumflutt sem var samið fyrir kórinn í tilefni af 25 ára afmæli hans, lagið er eftir Auði Guðjohnsen og ljóðið eftir okkar ástæla skáld, Sigurð Hansen, í Kringlumýri Skagafirði.Meira -
Bókaútgáfan Hólar gefur út bókina Segir mamma þín það?
Hjá Bókaútgáfunni Hólum kom í haust út bókin Segir mamma þín það? eftir Guðjón Inga Eiríksson. Hún inniheldur gamansögur úr skólum, vítt og breitt um landið, og auðvitað koma Skagfirðingar þar við sögu. Hér á eftir verður gripið niður í bókina...Meira -
Tengill bauð lægst í rafbúnað fyrir Skagastrandarhöfn
Alls bárust sex tilboð í rafbúnað og uppsetningu og tengingar á honum fyrir Ásgarð og Miðgarð við Skagastrandarhöfn. Verkið var boðið út í nóvember og rann tilboðsfrestur út 2. desember síðastliðinn. Áætlaður verkkostnaður er 31,5 milljónir króna og lægstbjóðandi var Tengill á Sauðárkróki, sem bauð 23,3 milljónir í verkið eða 74% af kostnaðaráætlun.Meira -
Raggý gefur okkur smá innsýn í sinn jólaheim
Blaðamaður setti sig í samband við nokkrar alvöru jólakúlur og forvitnaðist um jólatréið á heimilinu. Allir hafa sínar jólatréssérviskur og áhugavert að heyra misjafnar hefðir á heimilum fólks þegar kemur að jólaténu. Sumir eru alltaf með lifandi tré á meðan aðrir eru með gervi. Helgispjöll að skreyta tréið fyrr en á Þorláksmessu, bannað að kveikja fyrr en klukkan sex á aðfangadag á meðan sum heimili setja tréið í fullan skrúða í upphafi aðventu. Gervitré eru ekki jólatré það vantar allann ilminn, ekkert lifandi tré á mitt heimili með öllu því dýralífi sem því getur fylgt, þetta eru allt saman örfá dæmi um jólatréssérviskur fólks.Meira -
David og Manu framlengja við Tindastól!
Tindastóll hefur náð samkomulagi við David Bercedo og Manuel Ferriol um framlengingu á samningum þeirra við félagið til næstu tveggja ára! Í yfirlýsingu frá knattspyrnudeildinni segir að báðir leikmenn hafi verið lykilmenn í Meistaraflokki karla og lagt sitt af mörkum bæði innan vallar sem utan. Framlengingarnar eru liður í áframhaldandi uppbyggingu liðsins og undirstrika metnað félagsins fyrir komandi ár.Meira
