Frábær mæting á fyrsta konukvöldi PKS
Í gærkvöldi var mikil stemning í aðstöðunni hjá Pílukastfélagi Skagafjarðar við Borgarteig 7 þegar hátt í 40 konur mættu og spiluðu pílu saman á fyrsta konukvöldi PKS. Þarna voru saman komnar konur sem bæði kunnu leikinn og kunnu ekkert og voru því mættar til að læra og prufa sig áfram.
Sylvía Dögg og Atli Víðir, sem eru félagar í klúbbnum, voru til staðar til að leiðbeina þeim sem á þurftu að halda og var ekki annað að sjá en að þetta hafi gengið glimrandi vel. Nú er spurning hvað verður í framhaldinu því það er greinilega mikill áhugi hjá konum Skagafjarðar að spila með konum.