Góð gjöf til leikskólans Birkilundar

Gjöfin veglega. Aðsend mynd
Gjöfin veglega. Aðsend mynd

Kvenfélag Lýtingsstaðahrepps færði nýverið leikskólanum Birkilundi í Varmahlíð leikföng að verðmæti 100 þúsund krónur að gjöf í tilefni af 80 ára afmæli félagsins. Er þar um að ræða dráttarvélar með ámoksturstæki og kerru, Legófólk og Legóhjólasett. Einnig er veglegt dýrahús ásamt hóp af húsdýrum. Þessum leikföngum verður skipt niður á deildirnar og ekki vafi á að það verður vel nýtt í framtíðinni.

Börn og starfsfólk leikskólans þakka kvenfélaginu kærlega fyrir þessa veglegu og kærkomnu gjöf.

 

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir