Gul viðvörun
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Strandir og Norðurland vestra.
Spáð er norðaustan og norðan 13-20 m/s og talsverð snjókoma eða skafrenningur, mest á Ströndum. Svona verðurspá fylgir oft lítið skyggni og versnandi færð. Viðvörun tekur gildi á hádegi í dag en á svo að ganga niður þegar líður á kvöldið.
Þá er við hæfi að biðja vegfarendur nú sem endranær að fara varlega.
Nánar HÉR.