Hættuleg hola á Hólum

Hola, sem grafin var við göngustíg við Geitagerði á Hólum í Hjaltadal, hefur staðið opin frá því í fyrrahaust, íbúum og öðrum vegfarendum um svæðið til ama og torveldar gönguleiðina. Að sögn eins vegfaranda, sem hafði samband við Feyki, er slysahætta af holunni sem ómögulegt er að sjá hvaða hlutverki gegnir þarna.
Sagðist viðkomandi hafa kvartað, m.a. við lögreglu, yfir því að ekki væri búið að ganga frá eftir þær framkvæmdir sem átti sér stað í fyrra þar sem hann taldi slysahættu af holunni. Samkvæmt svari Svf. Skagafjarðar við fyrirspurn Feykis var holan grafin vegna úttektar á fráveitunni á Hólum í Hjaltadal í október sl. Úttektinni er lokið en eftir er að hækka brunna upp og reiknað sé með að því verki og frágangi ljúki í næstu viku.