Heima er best - FeykirTV

Tæplega sextíu manna hópur nemenda, kennara og foreldra sem fóru í skólaferðalag til Ísafjarðar á föstudaginn skilaði sér heim á Sauðárkrók laust fyrir miðnætti í gærkvöld. Feykir fylgdist með ferðalagi þeirra frá Ísafirði sem tók rúman sólarhring, einkum vegan vatnavaxta beggja vegna Hólmavíkur.

Meðfylgjandi myndband gerði Halldór Ingólfsson en ásamt honum tóku Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir og Jón Halldórsson á Hólmavík upp myndefnið á myndbandinu og sýnir það annars vegar aðstæður meðan krakkarnir voru föst í Staðardal í Steingrímsfirðina og hins vegar gleði þeirra yfir að komast loksins heim.

http://youtu.be/u3ntdmAn994

Fleiri fréttir