Hópurinn lagður af stað frá Hólmavík
Hópur nema frá FNV sem var tepptur í Staðardal í Steingrímsfirði síðustu nótt þar sem vegurinn var sundur er nú lagður af stað frá Hólmavík. Hópurinn komst til Hólmavíkur laust fyrir hádegi í dag en hefur síðan beðið eftir að vegurinn við Skeljavík, sunnan Hólmavíkur, yrði fær.
Djúpvegur nr. 61 fór einnig sundur við Skeljavík en nú í kvöld tókst að hleypa umferð þar yfir, en margir flutningabílar voru farnir að bíða, ásamt rútunni frá Sauðárkróki og öðrum ferðalöngum. Það var þó ekki meira en svo að hægt væri að komast um bráðabirgðaveginn þegar rútan fór þar yfir um áttaleytið í kvöld.
Krakkarnir nýttu tímann á Hólmavík í dag til að matast og hvílast, en opnuð var fjöldahjálparstöð í Félagsheimilinu á Hólmavík við komu þeirra þangað. Þá gafst þeim kostur á að hlaða símana sína en flestir voru orðnir sambandslausir, þó hægt væri að ná í fararstjórana allan tímann. Gangi allt að óskum má búast við að hópurinn verði kominn á Sauðárkrók um miðnætti.
Myndirnar hér að neðan tók Jón Halldórsson landpóstur á Hólmavík.