Húnaþing vestra áformar að ljósleiðaravæða þéttbýli sveitarfélagsins
Á heimasíðu Húnaþings vestra segir að sveitarfélagið áformi að taka tilboði háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytis um að ljósleiðaravæða þau heimili í þéttbýli sveitarfélagsins sem eru ekki nú þegar komin með ljósleiðaratengingu. Sjá nánar hér. En áður en framkvæmdir hefjast á grundvelli styrks frá sjóðnum þá þarf sveitarfélagið að kanna eftirfarandi atriði:
- hvort fjarskiptafyrirtæki hyggjast tengja styrkhæf heimilisföng á markaðslegum forsendum. Lista yfir styrkhæf heimilisföng er hægt að nálgast hjá Húnaþingi vestra,
- hvort fjarskiptafyrirtæki hyggjast leggja og tengja eigið ljósleiðaranet í skurði/lagnaleiðir sem sveitarfélagið kostar.
Þau fjarskiptafyrirtæki sem kunna að hafa áhuga geta haft samband við sveitarstjóra fyrir 16. ágúst n.k. í netfangið unnur@hunathing.is
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri.