Hvar eru tækifærin fyrir Norðurland?
Nýverið kom út skýrsla sem unnin var af Rannsóknarmiðstöð ferðamála, í samstarfi við Háskólann á Hólum, fyrir Markaðsstofu Norðurlands um markaðssetningu áfangastaðarins Norðurland, en gerð skýrslunnar var m.a. styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands vestra sem eitt af átaksverkefnum 2018-2019. Með skýrslunni er áætlað að geta betur stigið næstu skref í markaðssetningu landshlutans i takt við áherslur áfangastaðaáætlunar og flokkun mögulegra gesta úr markaðsgreiningu Íslandsstofu.
Í frétt á vef SSNV segir að skýrslan skiptist í þrjá megin hluta; Markaðssetning ferðaþjónustufyrirtækja og sveitarfélaga á Norðurlandi, Ferðavenjur og viðhorf erlendra ferðamanna á Norðurlandi og Ummæli ferðamanna á Instagram, TripAdvisor og Facebook.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.