Jóhann Rúnar Skúlason er hestaíþróttaknapi ársins
Skagfirðingurinn Jóhann Rúnar Skúlason var á dögunum valinn knapi ársins hjá Landssambandi hestamannafélaga. Hann varð tvöfaldur heimsmeistari í hestaíþróttum á stóðhestinum Hnokka frá Fellskoti, á heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem fram fór í Berlín í ágúst á þessu ári. Á vef LH segir að Jóhann Rúnar sé afreksknapi af guðs náð og á að baki marga sigra á heims- og Norðurlandamótum. Hann hefur tekið þátt í heimsmeistaramótum íslenska hestsins síðan 1997 og unnið á annan tug heimsmeistaratitla í hestaíþróttum sem og allnokkra Norðurlanda- og Danmerkurmeistaratitla.
„Jóhann Rúnar er öðrum knöpum fyrirmynd, hann þjálfar hesta sína af kostgæfni og alúð og undirbýr bæði sjálfan sig og hestinn af mikilli nákvæmni fyrir þau átök sem keppni í hestaíþróttum fylgir. Hann er því afar vel að titlinum „Knapi ársins“ kominn,“ segir á lhhestar.is.


